Dýralæknastofa Hafnarfjarðar er ný dýralæknastofa þar sem fagmennska, virðing og velferð gæludýra er í fyrirrúmi. Að stofunni standa Silja og Sólrún dýralæknar og Berglind hundanuddari og hundaatferlisráðgjafi. Þær deila sameiginlegri ástríðu fyrir dýraheilbrigði og heildrænni nálgun á meðferð og umönnun dýra.
Aðstaðan á stofunni er hönnuð með þarfir gæludýra í huga. Hundar og kettir eru með sitthvort biðrými. Einungis kettir koma inn á kattaskoðunarherbergið og því er engin hundalykt þar sem getur virkað stressandi fyrir ketti. Sömuleiðis fara engir kettir inn á hundaskoðunarherbergið svo kisulykt truflar ekki forvitna hunda.
Stofan er búin fullkominni skurðstofu, sérhæfðri tannaðstöðu með tannröntgentæki, þremur skoðunarherbergjum og verslun með vönduðu úrvali af vörum fyrir gæludýr. Áhersla er lögð á rólega og virðingarríka nálgun við bæði gæludýrin og eigendur þeirra.
Gildin okkar eru þekking - virðing - væntumþykja.
Silja Edvardsdóttir lærði dýralækningar í Kaupmannahöfn og vann í Svíþjóð að loknu námi. Í lok árs 2014 fluttist hún aftur heim til Íslands og hefur starfað hér síðan. Silja sækir reglulega ráðstefnur og námskeið bæði hér heima og erlendis. Hún er í framhaldsnámi í tannlækningum gæludýra hjá Improve í Þýskalandi. Önnur áhugasvið Silju eru m.a. svæfingarlækningar og verkjastillingar dýra. Silja talar reiprennandi íslensku, þýsku, dönsku og ensku. Silja er mikil kisukona og á kettina Satan og Heklu.
Sólrún Dís Kolbeinsdóttir lærði dýralækningar í Kaupmannahöfn en hún er einnig líffræðingur. Sólrún hefur mikinn metnað fyrir virðingarríkri nálgun við dýr og hefur einstakt lag á dýrum sem upplifa hræðslu við að koma til dýralæknis. Hún hefur mikinn áhuga á skurðlækningum og almennum dýralækningum hunda og katta. Sólrún á kisurnar Uglu og Kríu
Berglind Guðbrandsdóttir er lærður hundaþjálfari og -atferlisráðgjafi ásamt því að vera hundanuddari. Hún lærði hundanudd í Chicago School og Canine Massage og hefur mikinn áhuga á líkamlegri og andlegri endurhæfingu hunda. Áður en hún ,,fór í hundana" lauk hún BSc í sálfræði hjá Háskóla Íslands. Berglind á whippet hundinn Takt.