Dýralæknastofa Hafnarfjarðar býður upp á reglulega fyrirlestra um þjálfun og heilsufar dýra.
Í nóvember verður úrval af fróðlegum og skemmtilegum fyrirlestrum um þjálfun og heilsufar dýra.
Hver fyrirlestur kostar 5.000 krónur, nema annað sé tekið fram. Takmörkuð sæti eru í boði og því mikilvægt að skrá sig.
Berglind Guðbrandsdóttir, hundaþjálfari, hundaatferlisráðgjafi og hundanuddari heldur fyrirlestrana.
Athugið að ekki er gert ráð fyrir að hundar mæti með eigendum.
Skráning á fyrirlestra er hér neðst á síðunni.
22. nóvember kl. 10.00-13:00
Áramótin fyrir hunda og ketti
Streita og melting dýra
Nú ætlum við að byrja að undirbúa okkur fyrir jól og áramót. Berglind verður með áramótafræðslu fyrir hunda- og kattaeigendur þar sem farið verður yfir það helsta sem gott er að hafa í huga fyrir áramótin.
Theodóra Róbertsdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur hjá Dýrheimum, verður svo með fræðslufyrirlestur um streitu og meltingu dýra. Hún mun ræða hvernig næring hefur áhrif á streitu og hvað við getum gert til að koma dýrunum okkar í andlegt og líkamlegt jafnvægi.
Lokið
Merkjamál og leikur hunda
Hundaeigendur fá góða innsýn í merkjamál hunda. Farið er yfir merki þess að hundum líður vel en einnig er farið ítarlega í stressmerki og ógnandi merki. Sérstök áhersla verður á leik hunda og hvað við viljum sjá í fallegum hundaleik. Hundaeigendur fá kennslu í hvernig hægt er að kenna hundum að leika fallega, hvaða hegðun er ekki í boði og hvernig hægt er að stöðva óæskilega hegðun milli hunda í leik.
Verð: 5.000 kr.
Lokið
Klóaklipp
Þessi fyrirlestur er í raun eins og lítið námskeið. Hann hentar sérstaklega þeim sem eiga hunda sem eiga erfitt með að láta klippa á sér klærnar. Farið er ítarlega yfir hvernig klippa á klær, bæði á ljósum og dökkum klóm, og hvaða búnað er best að nota.
Eigendur fá þjálfunarplan til að kenna hundum að læra að elska klóaklipp. Farið verður yfir planið skref fyrir skref og eigendum gefnar heimaæfingar.
Við mælum eindregið með að þeir sem ætla sér að mæta á klóaklipp fyrirlesturinn skrái sig líka á merkjamálsfyrirlesturinn, enda er mikilvægt að skilja merkjamál þegar unnið er með hunda sem eru óöryggir í aðstæðum eins og klóaklippi.
15. nóvember kl. 10.00-13:00
Atferli, gelt og hvatning hunda
Farið er yfir grunninn að því hvernig hundar hugsa og læra. Hvað hvetur hunda áfram? Hvað fær þá til að ná árangri í þjálfun? Hvað finnst þeim erfitt? Hvernig getum við aðlagað okkar væntingar að getu hundsins okkar?
Það verður einnig farið yfir algeng þjálfunarvandamál eins og innkall, taumgöngu, gelt og flaður og auðvitað lausnir við þeim vandamálum.